Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ályktanir frá Landsfundi Ungra vinstri-grænna

Á landsfundi Ungra vinstri-grænna í Hveragerði um liðna helgi voru samþykktar fjölmargar ályktanir. Þær fara hér á eftir:

Ályktun um velferðarmál
Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn 9. september 2006 í Hveragerði, skorar á stjórnvöld að gera átak í velferðarmálum. Tryggja þarf að allir þjóðfélagshópar ekki síst aldraðir og öryrkjar lifi við mannsæmandi kjör. Allir eiga rétt á að halda sjálfstæði sínu og reisn.

Það þarf að verja meira fjármagni til velferðarmála almennt þar sem ekki er líðandi að sjúkrahús og aðrar sambærilegar stofnanir búi við fjársvelti. Einnig er með öllu óásættanlegt að þær starfstéttir sem vinna við uppeldi og umönnun fái niðurlægjandi lág laun fyrir þau mikilvægu störf sem þær inna af hendi. Ríkisstjórnarflokkarnir ættu að skammast sín fyrir aðgerðaleysi í velferðarmálum.


Ályktun um launaleynd
Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn 9. september 2006 í Hveragerði, krefst þess að launaleynd verði afnumin hið snarasta. Launaleynd er til þess fallin að auka kynbundinn launamun og hamlar fólki að leita réttar síns.


Ályktun um kynferðisafbrot og nauðganir
Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn 9. september 2006 í Hveragerði, ályktar að harðar verði tekið á kynferðisglæpum og nauðgunum. Tryggja þarf fórnarlömbum nauðgana sérfræðiaðstoð og sjá til þess að allir þeir aðilar sem komi að málum hafi viðhlítandi þekkingu til að bera. Það er ekki líðandi að fórnarlömb nauðgana upplifi sig sem sökudólga og séu yfirheyrð sem slík. Ríkjandi fyrirkomulag hamlar þolendum að leita réttar síns.

Auka þarf eftirlit og fræðslu um nauðganir. Til að koma í veg fyrir nauðganir þurfa allir að vera samstíga, einkum löggjafar- og dómsvaldið. Kynfrelsi einstaklinga skal vera óumdeilanlegt og engum skyldi líðast að brjóta gegn því. Til þess þarf almenna vitundarvakningu í þjóðfélaginu og skorar landsfundur UVG á stjórnvöld sem og aðra að beita sér fyrir slíkri vitundarvakningu.

Ályktun um reykingabann
Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn 9. september 2006 í Hveragerði, fagnar lögum um reykingabann á veitingahúsum. Reynsla annarra þjóða af reykingabanninu er almennt góð og kannanir sýna að stór hluti þjóðarinnar er hlynntur slíku banni.


Ályktun um meðferð fyrir átröskunarsjúklinga
Átraskanir verða sífellt stærra og stærra vandamál á Íslandi. BUGL annar varla eftirspurn, þrátt fyrir opnun nýrrar deildar fyrir átröskunarsjúklinga á Landspítala Háskólasjúkrahúss, sem er langþráð markmið. Sjúklingar alls staðar að landinu eru sendir til Reykjavíkur til að njóta þeirrar heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa. Mikil þörf er á að bjóða upp á samskonar úrræði á Akureyri. Þar er neyðin mikil og mikill vandi og dýrkeyptur fyrir sjúklinga að koma til meðferðar suður til Reykjavíkur. Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn 9. september 2006 í Hveragerði, fagnar opnun nýrrar deildar í Reykjavík og óskar eftir svipaðri deild á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.


Ályktun um trúfræðslu
Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn 9. september 2006 í Hveragerði, hafnar einhliða trúfræðslu í skólum. Kynna ætti nemendum helstu trúarbrögð án hlutdrægni. Jafnrétti skal ríkja milli trúarbragða.

Ályktun um tungumálakennslu innflytjenda
Fjöldi þess fólks sem velur að flytja til Íslands frá föðurlandi sínu er mikið fagnaðarefni og því ber Íslendingum að taka vel á móti því. Ljóst má hins vegar vera að útlendingar þurfa mikinn stuðning til að aðlagast íslensku samfélagi og verða þar með fullgildir þátttakendur í þjóðfélaginu. Forsenda þessa er sú að boðið sé upp á íslenskukennslu fyrir alla útlendinga sem hingað flytjast þeim að kostnaðarlausu. Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn 9. september 2006 í Hveragerði, leggur til að stjórnvöld taki upp samstarf með Samtökum atvinnulífsins og verkalýðsfélögum um að tryggja útlendingum viðhlítandi íslenskukennslu á vinnustöðum þeirra ef möguleiki er á.

Þrátt fyrir að lögð sé áhersla á að auðvelda útlendingum sem hingað koma að aðlagast íslensku samfélagi og verða fullgildir þjóðfélagsþegnar er það skýlaus krafa að þeim verði jafnframt gert kleyft að varðveita uppruna sinn, menningu og tungumál. Í því skyni er nauðsynlegt að tryggja börnum af erlendum uppruna kennslu í móðurmáli sínu og menningartengda fræðslu.


Ályktun um framkvæmdir á Hellisheiði vegna Hellisheiðarvirkjunar
Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn 9. september 2006 í Hveragerði, skora á Orkuveitu Reykjavíkur að ganga betur um náttúruna á Hellisheiði og bera virðingu fyrir viðkvæmu umhverfi Hellisheiðar og Hengilsvæðisins. UVG hvetja OR til að haga framkvæmdum þannig að sem minnst rask verði á náttúrunni á virkjunarsvæðinu og framkvæmdir falli vel inn í umhverfi Hellisheiðar og Hengilsvæðis.


Ályktun um gjaldtöku í opinbera kerfinu
Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn 9. september 2006 í Hveragerði, skorar á stjórnvöld að falla nú þegar frá allri gjaldtöku í opinberum skólum. Skólagjöld eru að mati fundarins ekki ásættanleg, hvorki í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum né háskólum. Lögum samkvæmt skal ríkja jafnrétti til náms á Íslandi. Síauknar álögur á nemendur og foreldra í formi skólagjaldi, innritunargjalda eða efniskostnaðar er ekki til marks um jafnrétti.

Ályktun um aðskilnað ríkis og kirkju
Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn 9. september 2006 í Hveragerði, ítrekar áður framkomna kröfu sína um að kirkja og ríkisvald verði aðskilin svo fljótt sem auðið er. Sú staðreynd að ríkisvaldið reki með þessum hætti trúfélag er með öllu óásættanleg og í andstöðu við almennt jafnræði í íslensku þjóðfélagi.

Ung vinstri-græn

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica