Ályktanir frá aðalfundi UVG í Kópavogi
Málefni öryrkja
Aðalfundur UVG-K telur að stjórnvöld þurfi að breyta stefnu sinni í málefnum öryrkja. Það er óásættanlegt að það megi neita öryrkjum um líf- og sjúkdómatryggingar og að börnum sjúklinga, sem teljast í ?áhættuhópi?, sé líka neitað. Sameinuðu þjóðirnar hafa sett fram sáttmála um að allir, jafnt fatlaðir sem heilbrigðir, eigi rétt á sömu tryggingum. Þetta er ekki órökrétt samkomulag. Að sjálfsögðu eiga allir rétt á sömu lífsgæðum. Öryrkjabandalagið á ekki að standa eitt í þessari baráttu. Lágtekjufólk má ekki vera skilið út undan. Allir þurfa trygginar. Látum Ísland vera í hópi þeirra fyrstu til að samþykkja og framfylgja þessum sáttmála og hættum að mismuna þeim sem minnst eiga!
Opið bókhald
Aðalfundur Ungra Vinstri-Grænna í Kópavogi ályktar að nú sé kominn tími til að opna bókhald allra flokka. Þetta er nauðsynlegt til þess að lýðræðið á Íslandi geti talist raunverulega opið. Með því að opna bókhald allra flokka á báðum stjórnstigum er hægt að koma í veg fyrir að spilling geti þrífst svo glatt í stjórnkerfi Íslands. Íslendingar eiga skilið að vita hvað flokkar eru að gera við fjármagn sitt og hvaðan það kemur. Annað kemur ekki til greina.
Almenningssamgöngur
Aðalfundur Ungra Vinstri-Grænna í Kópavogi telur að yfirvöld á höfuðborgarsvæðinu beri að efla Strætó til að tryggja að almenningssamgöngur leggist ekki af. Með góðum almenningssamgöngum lækkar viðhaldskostnaður akbrauta og kostnaður hjá heimilum við að reka bifreiðar minnkar. Þetta er einnig stórt umhverfismál þar sem minni útblástur og minna svifryk er allra hagur. Fargjöld í strætisvagna hafa hækkað til muna þó að þjónustan endurspegli það ekki. Almenningssamgöngur mættu auka fjölbreytni greiðslumáta. Fjölga þarf bæði strætisvagnaleiðum og tíðni ferða. Strætó getur verið raunhæf og hagkvæm leið til að ferðast.
Ung vinstri-græn í Kópavogi
