Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ályktun UVG-R um Strætó

Ung vinstri græn í Reykjavík harma þá ákvörðun stjórnar Strætó bs að skerða þjónustustig almenningssamgangna í Reykjavíkurborg með því að leggja niður stofnleið fimm og draga úr tíðni ferða. Það er sorglegt að fulltrúi Reykjavíkurborgar í stjórn Strætó feli sig á bak við fækkun farþega og rekstrarvanda þegar að ljóst má vera að farþegum fjölgar ekki né verður reksturinn auðveldari nema að þjónustan sé aukin.

Borgarbúar hafa ekki valið einkabílinn. Borgaryfirvöld hafa einfaldlega tekið valkostina frá þeim með rangri stefnu í samgöngumálum. Fólk nýtir sér ekki strætó nema hann sé gerður að raunhæfum valkosti. Brýn þörf er á því að nútímavæða þjónustu strætisvagna. Í stað þess að draga úr þjónustu og möguleikum almennings til að nýta almenningssamgöngur ættu borgaryfirvöld að sjá sóma sinn í því að fjárfesta í þeim. Almenningssamgöngur eru umhverfisvænn og hagkvæmur kostur, þjónusta sem á að standa öllum til boða og fullkomlega eðlilegt að rekstur þeirra fái opinberan stuðning. Opinber stuðningur við almenningssamgöngur snýst ekki um gróða eða tap heldur hvað við erum tilbúin að leggja til betri borgar.

Flutningsmaður: Auður Lilja Erlingsdóttir

Aðalfundur UVGR 2.september 2006

Ung vinstri-græn í Reykjavík

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica