Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ályktun UVG-R um hjólreiðar

Aðalfundur UVG-R skorar á borgarstjórn að viðurkenna hjólreiðar sem samgöngumáta og hefja í því framhaldi skipulag og lagningu hjólreiðastíga meðfram helstu umferðaræðum borgarinnar.

Aðalfundur UVG-R telur ástandi hjólreiðastíga mjög ábótavant. Hjólreiðastígar í Reykjavík eru bæði fáir og lélegir. Fjöldinn allur af einkabílum, breiðir vegir og aðrir fylgifiskar einkabílismans stofna hjólreiðamönnum í hættu og hamla því að þeir geti notað hjól sem samgöngutæki.

UVG-R telja að bæta eigi og fjölga hjólreiðastígum á sama tíma og öryggi hjólreiðamanna er haft að leiðarljósi. Hjólreiðar eiga að vera raunhæfur kostur fyrir alla enda umhverfisvænar og heilsusamlegar.

Flutningsmaður: Brynja Björg Halldórsdóttir

Aðalfundur UVGR 2. september 2006

Ung vinstri-græn í Reykjavík

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica