Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ályktun UVG-R um stofnun leikskólaráðs

Aðalfundur Ungra vinstri grænna í Reykjavík undrast þá ákvörðun borgarráðs að aðskilja málefni leikskóla og annarrar menntunar í borginni. Í nýliðinni kosningabaráttu minntist hvorugur stjórnarflokkurinn á neitt í þessa veru og því má undrun sæta að það liggi svo á að fara í þessa stjórnkerfisbreytingu að ekki megi staldra við og leita eftir áliti fagaðila eða foreldra um málið.

Ung vinstri græn í Reykjavík styðja þá sjö hundruð starfsmenn leikskóla Reykjavíkurborgar sem skoruðu á borgarráð að falla frá því að stofna sérstakt leikskólaráð og leikskólasvið. Það eru einfaldlega engin fagleg rök að baki því að kljúfa fyrsta skólastigið frá öðru skólastarfi í borginni.

Flutningsmaður: Auður Lilja Erlingsdóttir

Aðalfundur UVGR 2.september 2006

Ung vinstri-græn í Reykjavík

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica