Fréttasafn
Ályktun stjórnar UVG
Stjórn Ungra vinstri grænna styðja heilshugar aðgerðir ófaglæðra starfsmanna á dvalarheimilum aldraðra. Stjórn UVG telja að störf þeirra séu stórlega vanmetin. Laun og aðbúnaður þessa hóps eru til skammar. Aðgerðarleysi stjórnvalda er óskiljanlegt og ósvífið. Um er að ræða kjaraleiðréttingu sem krefst sérstakra aðgerða og þýðir ekki fyrir stjórnvöld að fela sig á bak við sjónarmið um launaskrið. Stjórn UVG krefst þess að kröfum ófaglærðra verði mætt hið snarasta.
Stjórn UVG
