Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ályktun frá Ungum vinstri grænum á Akureyri

Ung Vinstri-Græn á Akureyri fagna löngu tímabærri ákvörðun Bandaríkja Norður-Ameríku að hverfa af landi brott með herafla sinn. UVGA eru sammála því að óþarfi er að verja Ísland með hervaldi og telja landið mun öruggara eftir brotthvarf Bandaríkjahers. Augljóst er að varnarsamningur við Bandaríkin er einnig óþarfur og ber samningsaðilum að segja honum upp tafarlaust. Sömuleiðis er það skylda íslenska ríkisins að fara eftir vilja meirihluta þjóðarinnar og hafna stuðningi við Íraksstríðið og þeim hryllingi er því fylgir.

Ung vinstri-græn á Akureyri

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica