Ályktun frá Stjórn Ungra vinstri grænna
Stjórn Ungra vinstri grænna fagnar því að Bandaríkjaher skuli loksins vera að fara burt. Stjórn UVG krefst þess að stjórnvöld fari að hugsa gáfulega og taki forystu sem friðelskandi, herlaus þjóð. Þó að Ísland sé að losna við stríðstækin þá er sannleikurinn sá að Bandaríkjaher ætlar sér að nota þessi stríðstól í öðrum löndum til að myrða fólk. Ísland á að berjast gegn stríðsvélinni en ekki vera huglaust, sérhlífið og sjálfselskt eins og Bandaríkin.Stjórn UVG fagnar öllum þeim hugmyndum að nýsköpun og þeim tækifærum sem opnast hafa á Suðurnesjum vegna brotthvarfs hersins. Tækifærin fyrir svo menntað og ríkt land eru óteljanleg, nýtum hugvitið og björgum því sem ríkisstjórnin er búin að klúðra.
Stjórn UVG
