X-V í Reykjavík 2006
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fjölmennum félagsfundi Vinstri Grænna í Reykjavík í gær:
Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs 15.ágúst 2005 hefur móttekið umboð viðræðunefndar VGR vegna aðildar að R-lista fyrir kosningarnar 2006. Fundurinn lýsir fullu trausti á viðræðunefndina og störf hennar og telur hana hafa unnið vel og einarðlega í samræmi við það umboð sem henni hefur verið falið á fundum félagsins.Viðræðunefnd VGR hefur í störfum sínum lagt megináherslu á kosningabandalag með jafnri aðkomu flokkana að framboðinu enda hafa þær forsendur verið hornsteinn Reykjavíkurlistans alla tíð. Í viðræðuferlinu hefur ekki náðst samstaða um þetta grundvallaratriði né heldur að flokkarnir þrír gætu tekið þátt í samstarfinu á eigin forsendum og valið sían fulltrúa inn á listann hver með sínum hætti.Félagsfundurinn samþykkir, miðað við þær forsendur sem nú liggja fyrir, að hefja þegar undirbúning að framboði flokksins fyrir borgarstjórnarkosninngarnar 2006.
Fundurinn leggur áherslu á að VG í Reykjavík stendur af fullum heilindum að stjórn Reykjavíkurborgar undir merkjum Reykjavíkurlistans á yfirstandandi kjörtímabili í samvinnu við Samfylkinguna og Framsóknarflokkinn á grundvelli gildandi samstarfsyfirlýsingar og málefnasamnings og treystir borgarfulltrúum til að axla þá ábyrgð sem því fylgir. Það er markmið VGR að vinna að framgangi félagshyggju og umhverfissjónarmiða við stjórn borgarinnar og er félagið reiðubúið til viðræðna og samstarfs um að vinna þeim sjónarmiðum brautargengi á öllum stigum. Fundurinn hvetur félagshyggjuflokkana í borginni til að bindast fastmælum um samstarf og myndun félagshyggjustjórnar á næsta kjörtímabili hvernig sem framboðsmálum þeirra verður háttað.
Vinstri-græn í Reykjavík
