Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ályktun UVG í Reykjavík

Ályktun stjórnar Reykjavíkurfélags Ungra vinstri-grænna varðandi þátttöku flokksins í R-listasamstarfinu:

Stjórn Ungra vinstri-grænna í Reykjavík lýsir eindreginni andstöðu sinni við áframhaldandi þáttöku Vinstri-grænna í R-listanum að loknu yfirstandandi kjörtímabili. Þó að R-listinn hafi komið að mörgum góðum málefnum er það skoðun okkar að það þjóni flokknum betur, og þar með hagsmunum Reykvíkinga allra, að Vinstri-græn bjóði fram í eigin nafni í næstu kosningum. Mikill styrr hefur staðið um R-lista samstarfið síðustu misseri og teljum við að áframhaldandi samstarf sé einungis til þess fallið að grafa undan trúverðugleika flokksins, sem og trausti kjósenda okkar. Því skorum við á stjórn Reykjavíkurfélags flokksins að hefja án tafar undirbúning að sérframboði í næstu borgarstjórnarkosningum

Stjórn UVG-R

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica