Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ályktun um þáttöku Íslands í árásarstríði á Írak

Landsþing Ungra vinstri grænna, haldið á Akureyri 2. október 2004, krefst þess að íslensk stjórnvöld taki Ísland tafarlaust af lista hinna viljugu, staðföstu þjóða og fordæmi þá hernaðar- og yfirgangsstefnu sem rekin er í Írak að frumkvæði stjórna Bandaríkjanna og Bretlands. Sá skilyrðislausi undirlægjuháttur sem stjórnvöld hafa sýnt af sér gagnvart þeirri andstyggilegu heimsvaldastefnu sem rekin er af þessum þjóðum er skammarlegur smánarblettur á íslensku þjóðinni. Ung vinstri græn neita að taka þátt í því að gera heiminn allan að einsleitu kerfi sem stjórnað er með hernaðarógnunum stórvelda. Stríðsrekstur skilar engu nema dauða.

Ung vinstri-græn

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica