Ályktun um utanríkismál
Landsfundur Ungra vinstri grænna mótmælir aðferðum í hinu svokallaða stríði gegn hryðjuverkum. Markmiðið með hryðjuverkum er að skapa ótta. Því er það órökrétt og ber vott um skammsýni að ríkisstjórnir bregðist við með því að draga úr vernd grundvallarmannréttinda og magna upp ótta og tortryggni. Hið óskilgreinda stríð gegn hryðjuverkum fæst ekki unnið og raunverulegu jafnvægi komið á; nema vernd mannréttinda, jöfnun lífsgæða og virðing milli mismunandi menningarheima sé tryggð.
Hryðjuverkaógn samtímans sprettur að miklu leyti upp á svæðum þar sem aðstæður eru bágar og almenningur býr við fátækt, niðurlægingu og vanmátt. Til að minnka þessa ógn ættu Íslendingar að styðja aðgerðir í átt til gagnkvæms skilnings í stað beitingar vopnavalds sem byggir upp enn frekari múra milli ríkja og þjóða. Við minnkum ekki hryðjuverkaógnina eða stuðlum að friðsælla alþjóðasamfélagi með því að fara gegn alþjóðalögum þegar okkur svo sýnist. Árás á Írak undir forystu Bandaríkjanna og Bretlands, með stuðningi Íslands, er dæmi um stríð sem fer gegn alþjóðalögum. Annað dæmi um brot á alþjóðalögum eru fangabúðir Bandaríkjamanna á Guantánamoflóa þar sem fólki er haldið föngnu, án dóms og laga, jafnvel svo árum skiptir. Ung Vinstri Græn krefjast þess að íslensk stjórnvöld beitir sér af fullri hörku fyrir því að fangarnir verði ákærðir, og hljóti réttláta málsmeðferð, ellegar verði sleppt tafarlaust.
Ung vinstri græn leggja þunga áherslu á að Íslendingar sinni skyldum sínum sem iðnríki á hæsta þróunarstigi og leggi sitt af mörkum til þróunaraðstoðar; ekki einungis vegna þess að það lítur vel út á pappírum fyrir framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þróunaraðstoð verði sjálfsagður þáttur í útgjöldum íslenska ríkisins til að jafna geigvænlegan mun á lífskjörum í heiminum. Skýr greinarmunur sé gerður á raunverulegri þróunaraðstoð og aðgerðum á borð við hergagnaflutning sem íslenska ríkið hefur flokkað sem þróunaraðstoð. Sjálfsögð lágmarksútgjöld Íslands til þróunaraðstoðar ættu að vera 0,7 % af þjóðarframleiðslu samkvæmt markmiðum Sameinuðu þjóðanna en eru í ár 0,19%. Ung vinstri græn fagna áformum um aukna þróunaraðstoð en leggja áherslu á að lágmarkinu verði náð sem allra fyrst og fyrr en áætlað er. Gera þarf skýran greinarmun á þróunaraðstoð og svokallaðri friðargæslu sem oftar en ekki er hluti af hernaðarstefnu og ólöglegu hernámi. Hingað til hefur kostnaður við íslensku friðargæsluna verið talinn fram sem þróunaraðstoð og því mótmæla Ung vinstri græn.
Ung vinstri-græn
