Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ályktun um umhverfismál

Ung vinstri græn vekja athygli á því góða starfi sem unnið hefur verið í Staðardagskrá 21, en vilja að gengið sé lengra. Sérstaklega er mikilvægt að Staðardagskráin sé kynnt mun betur og víðar fyrir almenningi. Enn vantar mikið upp á að umhverfisfræðsla í skólum sé nærri því sem talist getur fullnægjandi. Ung vinstri græn leggja áherslu á að umhverfisfræðsla í skólum eigi að vera jafn sjálfsögð námsgrein og stærðfræði og íslenska.

Ung vinstri græn benda stjórnvöldum á kosti svo kallaðra grænna skatta, sem greiddir eru í hlutfalli við mengun og spillingu umhverfisins. Það er kjörið tækifæri til að vekja til vitundar þá sem gleyma sér í eigin hagsmunum á kostnað umhverfisins. Auk þess væri hægt að nýta græna skattinn til að fjármagna mikilvæg verkefni í umhverfismálum sem enn eru í ólestri.

Ung vinstri græn hvetja stjórnvöld til að stuðla að aukinni fjölbreytni í atvinnumálum. Með því að einblína ekki á álbræðslu og leggja ekki öll eggin í sömu körfu, tryggjum við ekki aðeins fjölbreytni í atvinnulífi heldur einnig skynsamlega nýtingu náttúruauðlinda. Íslensk framleiðsla ætti ekki að takmarkast við frumvinnslu, heldur ná til fullvinnslu afurða þar sem íslenskt hugvit fær að njóta sín. Þannig vinna umhvefissjónarmið og efnahagsleg sjónarmið saman að einu marki.

Ung vinstri-græn

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica