Ályktun um velferðarmál
Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn laugardaginn 2. október á Akureyri ályktar eftirfarandi:
Um leið og Íslendingar stæra sig af almennri velmegun er nauðsynlegt að missa aldrei sjónar af því hvernig samfélagi við viljum búa í og búa öðrum. Ung vinstri græn hafa skýra sýn á þjóðfélag þar sem áhersla er lögð á viðreisn velferðarkerfisins, jafnrétti og sanngirni frekar en hagræði fyrir fáa útvalda.
Ung vinstri-græn leggjast eindregið gegn einkavæðingaráformum sitjandi ríkisstjórnar. Þrátt fyrir fögur fyrirheit mun einkaframkvæmd aldrei koma í stað opinbers rekstrar í velferðarkerfinu, menntakerfinu né heilbrigðiskerfinu. Þetta eru meginstoðir þjóðfélagsins sem eiga að vera á ábyrgð ríkisins. Ríkisvaldið á að bera ábyrgð á þegnum sínum og tryggja þeim jöfn réttindi og mannsæmandi kjör.
Ung vinstri-græn lýsa því einnig yfir þungum áhyggjum vegna fyrirhugaðra skattalækkana ríkisstjórnarflokkanna og þeim afleiðingum sem að þær munu hafa á velferðarkerfið í heild sinni. Verði þessar skattalækkanir að veruleika mun tekjumissir ríkissjóðs svipta stoðunum undan velferðarkerfinu, sem á að vera öryggisnet allra landsmanna. Enn er höggvið í sama knérunn og áður. Það eru fyrst og fremst hinir efnameiri sem að hagnast á flötum skattalækkunum, á meðan að þjónusta við þá sem verr eru settir dregst sífellt saman jafnframt því að kostnaðinum er velt yfir á neytendur. Slíkt hlýtur að teljast í hæsta máta óeðlilegt og ósiðlegt.
Skattkerfið er til þess að afla ríkissjóði tekna sem hann svo aftur nýtir til að dreifa gæðum til þegnanna. Þetta hlutverk verður að hafa í huga þegar að breytingar á skattkerfinu eru ræddar. Í stað þess að lækka skatta vilja Ung vinstri-græn leggja megin áherslu á að velferðarkerfið verði reist við og komið verði til móts við hinn almenna launþega með hækkun persónuafsláttar og þrepaskiptu tekjuskattkerfi. Staða lágtekjufólks yrði með því móti bætt verulega án þess að tekjur ríkissjóðs skertust til muna.
Ung vinstri-græn hafa ekki misst sjónar af því hvernig samfélagi þau vilja búa í og búa öðrum og beina þeim tilmælum til ráðamanna að íhuga það sama. Við eigum að gæta bróður okkar.
Ung vinstri-græn
