Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ályktun um heimilisleysi

Landsfundur Ungra vinstri grænna, haldinn laugardaginn 2. október á Akureyri skorar á sveitarstjórnir, sem og og ríkisstjórn Íslands að horfast í augu við þá staðreynd sem skýrt kemur fram í svari félagsmálaráðuneytisins frá 6.4.2004 við fyrirspurn sem lögð var fram á Alþingi að til er stór hópur fólks sem ekki hefur aðgang að húsaskjóli.

Sérstaklega er því beint til félagsmálayfirvalda í Reykjavík, þar sem þessi hópur er stærstur, að leysa tafarlaust úr húsnæðisvanda þessa hóps með aðgerðum á borð við fjölgun næturgistiskýla sem og dagmiðstöðva. Brýn nauðsyn er á að til séu slík skýli þar sem heimilislaust fólk geti fengið gistingu og aðhlynningu án skilyrða.

Enn fremur er skorað á borgaryfirvöld að taka málefni tengd þessum hópi fólks til endurskoðunar þar sem sjónum verði m.a. beint að auknu samstarfi heilbrigðis- og félagsmálayfirvalda með það að markmiði að samræma stefnu.

Það er velferðarríkinu Íslandi til skammar og ber vott um brenglað gildismat og ranga forgangsröðun að árið 2004 skuli enn vera til hópur fólks sem lifir við þær aðstæður og kjör sem þessi hópur gerir.

Ung vinstri-græn

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica