Ung vinstri græn krefjast réttlætis í málefnum samkynhneigðra
Ung vinstri græn telja niðurstöðu nefndar um réttarstöðu samkynhneigðra vera vonbrigði. Sætir það furðu að nefndin hafi klofnað í afstöðu sinni til frumættleiðinga og tæknifrjóvgana. Ung vinstri græn telja það formsatriði að leiðrétta þá ójöfnu stöðu sem samkynhneigðir hafa búið við hérlendis.
Röksemdir þeirra nefndarmanna sem lögðust gegn því að tækifæri samkynhneigðra til frumættleiðinga erlendra barna eru í besta falli skortur á hugrekki og í versta falli yfirskin fyrir dulda fordóma. Það að ekki hafi verið gerð almenn rannsókn á því hvernig erlendum ættleiddum börnum farnast hérlendis eru ekki rök gegn því að samkynhneigðir njóti sömu réttinda og gagnkynhneigðir.
Að fela sig á bak við þá skýringu að það geti stofnað árangursríkri samvinnu við erlend ríki í hættu ef jöfnun á tækifærum samkynhneigðra verði að veruleika er bæði ótrúverðugt og hneykslandi. Eru nefndarmenn þar að fela sig á bakvið þá fordóma sem þeir telja að séu ríkjandi erlendis. Ung vinstri græn telja það fásinnu að Íslendingar beygi sig undir fordóma annara ríkja í garð samkynhneigðra.
Ung vinstri græn telja það sjónarmið nefndarmanna að réttur barns sem er getið með tæknifrjóvgun til þess að eiga bæði móður og föður sem uppalanda ekki vera rök heldur fordóma. Það er réttur samkynhneigðra að fá að ala upp börn rétt eins og gagnkynhneigðir. Það er réttur barna að fá að alast upp hjá foreldrum hvort sem þeir eru gagnkynhneigðir eða samkynhneigðir.
Að öðru leyti fagna Ung vinstri græn niðurstöðum nefndarinnar og hvetja Alþingismenn til þess að jafna réttindi og tækifæri samkynhneigðra á við gagnkynhneigða að fullu á komandi haustþingi.
Ung vinstri-græn
