Ung vinstri græn

Fréttasafn

Sérðu ekki að ég er að frelsa þig?

Ríkisstjórnin fordæmi loftárásir NATO

Stjórnir Ungra vinstri grænna, Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, í Borgarbyggð og á Akureyri skora á ríkisstjórn Íslands og utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, að fordæma opinberlega loftárásir NATO-sveita í Líbíu. Ung vinstri græn vilja enn og aftur ítreka að Ísland er herlaust land sem á að sjá sóma sinn í því að styðja ekki við bandalög og árásarþjóðir sem fara í stríð.

Lesa meira
 
Stjórnarráðið

Ríkisstjórnin hafni hervæðingu

Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á ríkisstjórn Íslands að slíta nú þegar öllum samningaviðræðum við hollenska hernaðarfyrirtækið ECA um að það fái leyfi til að halda uppi starfsemi á Íslandi. Mögulegur fjárhagslegur ávinningur auk starfa sem kunna að skapast réttlæta ekki á nokkurn hátt að starfsemi fyrirtækis sem þjálfar fólk í að drepa eða limlesta annað fólk sé heimiluð á Íslandi. Ísland er herlaust land og á að mati stjórnar Ungra vinstri grænna að vera öðrum þjóðum til eftirbreytni með því að leggjast alfarið gegn stríðsrekstri og öllu honum tengdu. Þrátt fyrir að Íslendingar þurfi nú að glíma við afleiðingar efnahagskreppunnar eigum við að leita annarra leiða heldur en þeirra sem ganga út á að hagnast á og stuðla að neyð annars fólks.

Lesa meira
 
Merki ungra vinstri grænna

Ályktun UVGh um fyrirætlanir Dómsmála- og mannréttindaráðherra

Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu mótmælir  harðlega hugmyndum dómsmálaráðherra sem sagt var frá í Fréttablaðinu þann 16. ágúst og fela í sér stórauknar rannsóknarheimildir lögreglunnar. Með því að heimila njósnir um einstaklinga án án þess að fyrir liggi rökstuddur grunur um saknæmt athæfi er ríkisvaldið komið út á næfurþunnan ís. Út frá grundvallar mannréttinda - og lýðræðissjónarmiðum verður að hafna öllum slíkum hugmyndum.

Lesa meira
 
Merki ungra vinstri grænna

Ísland slíti stjórnmálasambandi við Ísrael

Í ljósi linnulausra mannréttindabrota og kúgunar Ísraela gagnvart palestínsku þjóðinni skorar stjórn Ungra vinstri grænna á ríkisstjórn Íslands að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael, tafarlaust.

Lesa meira
 
Stjórnarráðið

Úrskurði mannréttindadómstólsins fagnað

Stjórn Ungra vinstri grænna fagnar úrskurði mannréttindadómstóls Evrópu, frá því í morgun, þess efnis að álagning iðnaðarmálagjalds á Íslandi brjóti í bága við mannréttindasáttmála Evrópu. Stjórn Ungra vinstri grænna bendir í þessu samhengi á hversu galið það er að ríkið innheimti sóknargjöld af öllum Íslendingum, hvort sem þeir tilheyri viðurkenndu trúfélagi eða ekki, þar sem sóknarfjöld falli vissulega undir félagsgjöld samkvæmt skilgreiningu mannréttindasáttmálans.

Lesa meira
 
Úr þingsal Alþingishússins

Nektardans loksins bannaður

Stjórn Ungra vinstri grænna fagnar því að nú hafi verið samþykkt  lög á Alþingi  sem kveða á um bann við því að fyrirtæki geri út á nektardans eða nekt starfsmanna sinna að öðru leyti. Alþjóðlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að sterk tengsl eru á milli starfsemi nektarstaða og mansals, kynferðislegs ofbeldis og fíkniefnaneyslu. Það felast einnig mikilvæg skilaboð í lögum sem þessum. Það er ekki í lagi að kaupa sér aðgang að líkama annarrar manneskju. Manneskja er ekki markaðsvara!

Lesa meira
 
Mótmæli 3

Ríkisstjórnin hafni hervæðingu

Stjórn UVG telur að íslensk stjórnvöld eigi ekki að taka í mál að heimila starfsemi hollenska hernaðarfyrirtækisins E.C.A. Program á Íslandi sem hyggst leigja út orrustuþotur til heræfinga. Framsetning Fréttablaðsins á málinu í morgun er með ólíkindum, og er í raun gagnrýnislaus auglýsing á kostum hervæðingar.

Lesa meira
 
landspitalinn

Frumvarpi heilbrigðisráðherra fagnað

Stjórn Ungra Vinstri grænna fagnar frumvarpi heilbrigðisráðherra, Álfheiðar Ingadóttur,  sem miðar að því að fella úr gildi lög 16/1938 sem heimila ófrjósemisaðgerðir á einstaklingum með þroskahömlun eða geðsjúkdóma. Það vekur furðu stjórnar UVG að lögin, sem eru tímaskekkja og brjóta á mannréttindum fólks, séu enn í gildi hér á landi. Stjórn Ungra vinstri grænna hvetur því þingheim allan til þess að samþykkja frumvarpið einróma og fella lögin úr gildi.

Lesa meira
 
Úr þingsal Alþingishússins

Þjóðaratkvæðagreislur í stórauknum mæli

Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu fagnar því fordæmi sem gefið hefur verið fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ýmis mál. Stjórnin skorar á ríkisstjórnina að láta kjósa, samhliða
sveitastjórnarkosningum í vor, um kvótakerfið og aflaheimildir þess, um veru Íslands í árásarbandalaginu NATÓ og hvort aðskilja beri ríki og kirkju.

Lesa meira
 
landspitalinn

Niðurskurði í geðheilbrigðismálum mótmælt

Stjórn Ungra vinstri grænna mótmælir fyrirhugaðri skerðingu á niðurgreiðslu geðlyfja og lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þeirra afleiðinga sem það kann að hafa í för með sér. Öllum er ljóst hversu vandasamt og óöfundsvert hlutskipti ríkisstjórnarinnar í fjármálum hins opinbera er og að ekki er hægt að ná fram nauðsynlegri hagræðingu án þess að til niðurskurðar komi. Samt sem áður skorar stjórn Ungra vinstri grænna á heilbrigðisráðherra  að endurskoða þessi áform í ljósi þeirra afleiðinga sem skerðingin mun hafa á einstaklinga  sem eiga við geðræn vandamál að stríða.

Lesa meira
 
Úr þingsal Alþingishússins

Alþingi samþykki Icesavefrumvarp

Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir yfir stuðningi við frumvarp fjármálaráðherra um ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninganna og hvetur til þess að frumvarpið verði samþykkt án frekari tafa. Öllum er ljóst hversu alvarlegt Icesave-málið er fyrir íslensku þjóðina. Aftur á móti gera allt of fáir sér grein fyrir því að ekki er hægt að leysa málið án þess að þjóðin beri skaða af. Því lengur sem málið stendur óafgreitt þeim mun meiri verður skaðinn.

Lesa meira
 
Mótmæli

Varnarmálastofnun loksins aflögð

Stjórn Ungra vinstri grænna fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja Varnarmálastofnun niður. Stofnun Varnarmálastofnunar var ein af þeim slæmu mistökum sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar kom í verk. Stofnunin var aldrei þannig úr garði gerð að hún tryggði raunverulega öryggi Íslendinga, heldur endurspeglaði hún úrelt kaldastríðsviðhorf sem miðuðu að því að auka hernaðarleg umsvif Íslands.

Lesa meira
 
Úr þingsal Alþingishússins

Falla skal frá fæðingarorlofstillögum

Stjórn Ungra vinstri grænna leggst alfarið gegn tillögum Árna Páls Árnasonar, félagsmálaráðherra, um frekari niðurskurð á fæðingarorlofi.  Rétt er að minna á að kjör nýbakaðra foreldra hafa þegar verið skert umtalsvert á síðasta ári og hámarksgreiðslur lækkaðar.

Lesa meira
 
Ráðhús Reykjavíkur

Róttækari aðgerðir í umhverfismálum

Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu vill vekja athygli á umsókn borgarstjórnar til tilnefningar Reykjavíkur sem Græna borg Evrópu (e. European green capital). Umsóknin gefur í skyn að Reykjavík hafi náð framúrskarandi árangri í umhverfisvernd. Stjórn UVGH telur þó að enn sé mjög langt í land.

Lesa meira
 
Stjórnarráðið

Réttlæti fyrir flóttamenn!

Stjórn Ungra vinstri grænna krefst þess að ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingar taki upp mannúðlega stefnu í málefnum flóttamanna og hætti nú þegar að beita fyrir sig Dyflinarsáttmálanum í stað þess að taka fyrir mál þeirra flóttamanna sem hingað leita skjóls.

Lesa meira
 
Stjórnarráðið

Afnema skal kvótakerfið í núverandi mynd

Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á sjávarútvegsráðherra, Jón Bjarnason, að hefja að fullu vinnu við framkvæmd fyrirningarleiðarinnar til að afnema kvótakerfið í núverandi mynd í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og stefnu VG.

Lesa meira
 
Merki ungra vinstri grænna

Björgum garðyrkjunni!

Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á íslensk stjórnvöld að bregðast strax við þeirri grafalvarlegu stöðu sem blasir við íslenskum garðyrkjubændum. Ljóst er að verði ekkert að gert verða margir garðyrkjubændur að hætta starfsemi sinni með tilheyrandi afleiðingum.

Lesa meira
 
kirkjan-prestar

Stöðvum trúarmisrétti í HÍ

Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir furðu sinni á því misrétti sem viðhefst milli trúarhópa í Háskóla Íslands. Auk þess er það ekki hlutverk Háskóla Íslands að byggja upp aðstöðu til trúariðkunar, slíkt á að vera á könnu trúfélaga en ekki menntastofnana.

Lesa meira
 
Ráðhús Reykjavíkur

Bætum aðstæður útigangsfólks!

Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu telur að úrræðum til handa útigangsfólki sé ábótavant. Það er staðreynd að á krepputímum fjölgar þeim sem þurfa á aðstoð að halda vegna fíknar sinnar og/ eða  heimilisleysis. Fullyrt hefur verið að sá fjöldi sem ekki eigi í nein hús að venda skipti hundruðum.

Lesa meira
 
Svandís Svavarsdóttir

Áfram Svandís!

Nú þarf ríkið að taka á honum stóra sínum og styðja sem flest það sem getur reist  íslenskt efnahagslíf við. Í því starfi er ekki skynsamlegt að einblína á stóriðjuna, sem þegar hefur brugðist. Skynsamlegt er að hugsa til framtíðar, líkt og umhverfisráðherra gerir.

Lesa meira
 
Merki ungra vinstri grænna

Ráðuneyti standi undir nafni

Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Útlendingastofnunar og Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra, frá 14, október síðastliðnum, þess efnis að vísa fjórum flóttamönnum úr landi og senda þá til Grikklands. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ítrekað bent á að aðstæður flóttamanna í Grikklandi séu skelfilegar.

Lesa meira
 
Ásmundur Daðason

Stuðningsyfirlýsing við Ásmund Daðason

Stjórn Ungra vinstri grænna hefur sent frá sér ályktun. Þar er meðal annars sérstök stuðningsyfirlýsing við Ásmund Einar Daðason, þingmann VG í Norðvesturkjördæmi. Einnig eru stjórnarflokkarnir hvattir til þess að leysa úr ESB flækjunni í góðri sátt.


Lesa meira
 
Mótmæli gegn NATO

Endalokum Varnarmálastofnunar fagnað

Ung vinstri græn fagna því að til standi að leggja niður Varnarmálastofnun í núverandi mynd og leggja til að heræfingar, loftrýmiseftirlit og önnur hernaðarleg starfsemi verði lögð niður og að peningarnir sem sparast verði nýttir í velferðarkerfinu.

Lesa meira
 
Stjórnarráðið

Óánægja með kynjahalla í ríkisstjórn

Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir megnri óánægju með að ekki skuli vera jafnt hlutfall kynja í ráðherraliði nýrrar ríkisstjórnar. Stjórnin gerir þá kröfu að þegar næst verði gerðar breytingar á skipan ráðherra í ríkisstjórninni verði hlutfall kynjanna innan hennar leiðrétt. Slíkt er í samræmi við samþykktir Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.

Lesa meira
 
Kolbrún Halldórsdóttir

Takk fyrir Kolla!

Ung vinstri græn þakka Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrir frábært hugsjónastarf í þágu náttúrunnar, kvenfrelsis, félagslegs jafnréttis og friðar í þau 10 ár sem hún hefur setið á þingi.

Lesa meira
 
uvg-logo

Mannúð í málefnum hælisleitenda

Ung vinstri græn skora á Útlendingastofnun að endurskoða stefnu sína í málefnum flóttamanna og hælisleitenda, sem hingað til virðist einungis hafa falist í því að vísa flóttamönnum úr landi. Hreyfingin hvetur stofnunina til að taka mannúðlegri afstöðu og forgangsraða í þágu mannréttinda, frekar en að fela sig bakvið undarlega túlkun Dyflinnarsáttmálans.

Lesa meira
 
uvg-logo

Ánægja með sumarannir

Ung vinstri græn fagna skjótum viðbrögðum og vasklegri framgöngu menntamálaráðherra Katrínar Jakobsdóttur við kröfum námsmanna um sumarnám í háskólum.


Lesa meira
 
katrin-jakobsdottir-frett

Ung vinstri græn vilja sumarannir

Ung vinstri græn hvetja menntamálaráðherra til að beita sér fyrir því að sem flestir háskólar bjóði upp á sumarannir á komandi sumri. Einnig leggja Ung vinstri græn til að skólagjöld fyrir sumarnám á framhaldsskólastigi verði afnumin.

Lesa meira
 
Mannfjöldi mótmælir við Alþingishúsið

Alþingi láti af ál-draumórum

Stjórn Ungra vinstri grænan skorar í ályktun sinni á þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að greiða atkvæði gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um heimild til samninga við Century Norðurál vegna álversuppbyggingar í Helguvík. Stjórnin telur frumvarpið á margan hátt brjóta gegn stefnu flokksins.

Lesa meira
 
Úr þingsal Alþingishússins

Alþingi banni kaup á vændi

Ung vinstri græn taka af heilum hug undir áskorun fjölmargra félagasamtaka um að Alþingi samþykki frumvarp um að banna kaup á vændi og fylgi þar með fordæmi Norðurlandanna Svíþjóðar og Noregs sem hafa bannað kaup á vændi.

Lesa meira
 
Stjórnarráðið

Ríkisstjórnin hverfi frá stóriðjustefnu

Ung vinstri græn krefjast þess að ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar beiti sér af fullum þunga fyrir því að horfið verði frá stóriðjustefnu fyrri ríkisstjórna tafarlaust...

Lesa meira
 

Ályktun um niðurskurð ríkisframlaga til Þjóðkirkjunnar

Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu harma þann niðurskurð sem gerður hefur verið þvert á hagsmuni þeirra sem minna mega sín. Það hefur sýnt sig á þessu kjörtímabili að stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar starfar ekki með hag almennings fyrir brjósti.
Lesa meira
 

Niðurskurður í hermálum - aukin þróunaraðstoð

Ung vinstri græn fagna endurskoðun á verkefnum utanríkisráðuneytisins og starfsemi sparnaðarnefndar í utanríkisráðuneytinu. Ung vinstri græn benda á að þau hafi fyrr í þessum mánuði lagt fram sparnaðaráætlun sem myndi gera ríkinu kleift að spara 14,6 milljarða kr. í fjárlögum næsta árs. Lesa meira
 

Aðgerðir Ísraelshers kalla á alþjóðlegt viðskiptabann

Ung vinstri græn fordæma grimmdarverk Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni og taka undir kröfu félagsins Íslands-Palestínu um að öllum stjórnmálasamskiptum Íslands við Ísraelsríkis verði hætt þar til það lætur af grimmdarverkum sínum. Lesa meira
 

Fjölmiðlar komi hreint fram

Ung vinstri græn gagnrýna harðlega framgöngu Páls Magnússonar útvarpsstjóra gagnvart G. Pétri Matthíassyni, fyrrum fréttamanni Ríkisútvarpsins, vegna ákvörðunar G. Péturs um að birta opinberlega viðtal við Geir Hilmar Haarde sem RÚV hefur haldið leyndu til þessa. Lesa meira
 

Ályktun UVG: Samfylkingin krafin um kosningar

Ung vinstri græn krefjast þess að boðað verði til kosninga eins fljótt og auðið er.  Eftir það sem á undan er gengið er það bæði siðferðisleg krafa og lýðræðislega nauðsynlegt að kosið verði um nýtt fólk og nýja stefnu til að byggja á til framtíðar. Lesa meira
 

Aðalfundur UVGA

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á Akureyri fór fram síðastliðið miðvikudagskvöld. Félagið kaus nýja stjórn og sendi einnig frá sér ályktun. Lesa meira
 

Sparnaðaráætlun UVG

Ung vinstri græn leggja áherslu á ábyrga fjármálastefnu og hvetja stjórnvöld til að spara í fjárlagagerð næsta árs. Í sérstakri sparnaðaráætlun Ungra vinstri grænna sem samþykkt var á landsfundi UVG um þarsíðustu helgi eru tillögur til stjórnvalda um sparnað uppá tæpa 15 milljarða íslenskra króna, sem fæst með því að skera niður ýmis fjárútlát sem eru annaðhvort óþörf eða beinlínis skaðleg að mati UVG.

Lesa meira
 

Vel heppnaður landsfundur Ungra vinstri grænna

Landsfundur Ungra vinstri grænna fór fram á Akureyri um helgina. Fundinn sátu 40 ungliðar frá öllum landshornum sem tóku þátt líflegum og frjóum umræðum sem skiluðu sér í fjölda ályktanna, endurbættri stefnuyfirlýsingu og hugmyndum fyrir komandi starfsár. Lesa meira
 
Kristján Möller

Nýtt félag Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu

Aðalfundur Ungra vinstri grænna í Reykjavík var haldinn síðastliðinn laugardag, 27. september 2008. Á fundinum var ákveðið að breyta nafni félagsins í Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu og sameina félög í nágrannasveitafélögum svæðisfélagi Ungra vinstri grænna í Reykjavík. Á fundinum voru samþykktar ályktanir um nektardansstaði, heimgreiðslur, umhverfisvænan ferðamáta, meðhöndlun sorps...

Lesa meira
 

Stofnuð verði jafnaðarmannahreyfing innan Samfylkingarinnar

Í ljósi nýjustu frétta af afstöðu þingmanna Samfylkingarinnar til frumvarps um Sjúkratryggingarstofnun og einkavæðingar í heilbrigðiskerfinu hvetja Ung vinstri græn til þess að stofnuð verði jafnaðarmannahreyfing innan Samfylkingarinnar sem starfi á sama grundvelli og Kvennahreyfing Samfylkingarinnar og Umhverfishreyfing Samfylkingarinnar, Græna netið. Lesa meira
 

Fjármálaráðherra segi af sér

Ung vinstri græn krefjast þess að Árni Mathiesen segi af sér sem fjármálaráðherra  og mæla með því að manneskja með betri skilning á þörfum þjóðarinnar taki við.

Lesa meira
 

Ungir jafnaðarmenn segi sig úr Samfylkingunni

Í ljósi nýjustu frétta af því að ráðherrar Samfylkingarinnar hafi tekið virkan þátt í uppbyggingu frekari virkjana- og álversframkvæmda hvetja Ung vinstri græn ungliðahreyfingu Samfylkingarinnar, Unga jafnaðarmenn, til þess að endurskoði val sitt á flokki. Lesa meira
 

Breytingartillaga í anda trúfrelsis frá VG

Ung vinstri græn lýsa yfir ánægju með framgöngu þingmanna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs þegar frumvörp um heildarlög grunnskóla og leikskóla voru afgreidd í þriðju umræðu á Alþingi í gær, fimmtudaginn 29. maí 2008. Lesa meira
 

Stefnu flokksins ekki fylgt

Ung vinstri græn lýsa yfir óánægju með framgöngu þingmanna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs þegar frumvörp um heildarlög grunnskóla og leikskóla voru afgreidd í annarri umræðu á Alþingi á mánudag. Lesa meira
 

Ályktun UVGA um framhaldsskólafrumvarp

Ung Vinstri-græn á Akureyri samþykktu eftirfarandi ályktun um frumvarp til laga um framhaldsskóla á fundi UVGA á Kaffi Karólínu þriðjudaginn 8. apríl 2008 Lesa meira
 

Heimagreiðslur leysa engan vanda

Stjórn Ungra vinstri grænna í Reykjavík hefur ályktað: Heimagreiðslur leysa engan vanda Lesa meira
 

Ályktun Ungra vinstri-grænna í Reykjavík

Stjórn Ungra vinstri-grænna í Reykjavík hefur ályktað vegna þess umróts og óstöðugleika sem hefur einkennt stjórn Reykjavíkurborgar á kjörtímabilinu, þá sérstaklega síðustu atburða. Lesa meira
 

Tvær ályktanir frá UVG á Suðurlandi


Ung vinstri-græn á Suðurlandi hafa sent frá sér tvær ályktanir: Hættum við Bitruvirkjun og Vörumst vítin við Ingólfsfjall. Lesa meira
 

Vopnin kvödd

Ung vinstri-græn lýsa fulltrúa BAE Systems, eins stærsta stríðstólaframleiðanda heims, óvelkomnna hingað til landsins og biðja þá vinsamlegast að hverfa af landi brott og leggja niður iðju sína.

Lesa meira
 

Kynhneigð kemur ríkinu ekki við

Ung vinstri-græn telja það ólíðandi að íslensk lög skipti fólki í hópa eftir kynhneigð, enda er kynhneigð einkamál hvers og eins. Því er fáránlegt að tvö hjúskaparlög séu í gildi á Íslandi, önnur fyrir „gagnkynhneigða“ og hin fyrir „samkynheigða“.

Lesa meira
 

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica