Beint í leiðarkerfi vefsins.
Stjórnir Ungra vinstri grænna, Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, í Borgarbyggð og á Akureyri skora á ríkisstjórn Íslands og utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, að fordæma opinberlega loftárásir NATO-sveita í Líbíu. Ung vinstri græn vilja enn og aftur ítreka að Ísland er herlaust land sem á að sjá sóma sinn í því að styðja ekki við bandalög og árásarþjóðir sem fara í stríð.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á ríkisstjórn Íslands að slíta nú þegar öllum samningaviðræðum við hollenska hernaðarfyrirtækið ECA um að það fái leyfi til að halda uppi starfsemi á Íslandi. Mögulegur fjárhagslegur ávinningur auk starfa sem kunna að skapast réttlæta ekki á nokkurn hátt að starfsemi fyrirtækis sem þjálfar fólk í að drepa eða limlesta annað fólk sé heimiluð á Íslandi. Ísland er herlaust land og á að mati stjórnar Ungra vinstri grænna að vera öðrum þjóðum til eftirbreytni með því að leggjast alfarið gegn stríðsrekstri og öllu honum tengdu. Þrátt fyrir að Íslendingar þurfi nú að glíma við afleiðingar efnahagskreppunnar eigum við að leita annarra leiða heldur en þeirra sem ganga út á að hagnast á og stuðla að neyð annars fólks.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu mótmælir harðlega hugmyndum dómsmálaráðherra sem sagt var frá í Fréttablaðinu þann 16. ágúst og fela í sér stórauknar rannsóknarheimildir lögreglunnar. Með því að heimila njósnir um einstaklinga án án þess að fyrir liggi rökstuddur grunur um saknæmt athæfi er ríkisvaldið komið út á næfurþunnan ís. Út frá grundvallar mannréttinda - og lýðræðissjónarmiðum verður að hafna öllum slíkum hugmyndum.
Lesa meira
Í ljósi linnulausra mannréttindabrota og kúgunar Ísraela gagnvart palestínsku þjóðinni skorar stjórn Ungra vinstri grænna á ríkisstjórn Íslands að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael, tafarlaust.
Lesa meira