Ung Vinstri Græn

Kaffispjall um Samgöngumál með UVG-H miðvikudaginn 20. mars kl. 20:00
Opinn fundur í formi kaffispjalls verður næstkomandi miðvikudag klukkan 20:00.

Létt og laggott spjall þar sem að aðalumræðuefnið verður samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu. Framsögumenn verða Ármann Kr. Ólafsson (bæjarstjóri Kópavogs og fyrrverandi stjórnarformaður Strætó bs.) og Ólafur Þór Gunnarsson (formaður samgöngunefndar Alþingis).

Að sjálfsögðu verður heitt á könnuni og allir hjartanlega velkomnir. Sjáumst vonandi sem flest.

Ást og friður

Ný stjórn Uvgh
Á aukaaðalfundi Uvgh síðastliðinn laugardag var ný stjórn félagsins kjörin og mun hún sitja fram að aðalfundi í haust. Tvö voru í framboði til formanns en Rakel G. Brandt hlaut 60% atkvæða í endurtekinni kosningu og er því réttkjörinn formaður félagsins. Í stjórn voru kjörin Helgi Hrafn Ólafsson, Bergljót María Sigurðardóttir, Magnús Pálsson og Hlédís Maren Guðmundsdóttir. Til vara voru kjörin Daníel Birgir Björgvinsson, Katrín Pálmadóttir og Una Hildardóttir.

UvgH á facebook

Afvegaleiðing umræðunnar
Bjarki Þór Grönfeldt, háskólanemi og Formaður UVG-V

Sjálfstæðismenn hafa verið í mikilli vörn síðan landsfundi þeirra lauk 24. febrúar síðastliðinn. Af ýmsu furðulegu stóð upp úr ályktun um að beri að taka mið af kristnum gildum í allri lagasetningu þegar það á við – hvað sem það nú þýðir. Þegar í ljós kom hversu mikið ályktunin var úr takt við raunveruleikann var hún dregin til baka. Þeim sem kenna sig við frjálslyndi og frjálshyggju er því mikil vorkun að sitja uppi með Sjálfstæðisflokkinn sem eina hægriflokk landsins.

Sjálfstæðismenn og fleiri eru að blanda tveimur ólíkum umræðum saman, viljandi eða óviljandi. Önnur umræðan snýst um hvort Íslendingar séu kristin þjóð en hin umræðan snýst um aðskilnað ríkis og kirkju. Hvort sjálfstæðismenn sjálfir geri sér ekki grein fyrir eðlislægum mun þessara tveggja ólíku mála eða blanda þeim vísvitandi saman er erfitt að segja. Af þeirri orðræðu sem sjálfstæðismenn hafa haft uppi má lesa að hér sé um að ræða einn og sama hlutinn. Þeir sem telja að aðskilja beri ríki og kirkju telja jafnframt að Ísland sé ekki kristin þjóð og eru þar af leiðandi örugglega ekki kristnir sjálfir. Þetta er mikill misskilningur, og stillir „aðskilnaðarsinnum“ upp sem einhvers konar ofstækismönnum sem berjast gegn kristinni arfleið þjóðarinnar og öllu sem því fylgir. Þessu gæti ekki farið fjarri. Með þessu er umræðan afvegaleidd.

Í kjölfar landsfundar sjálfstæðismanna fóru hinir ýmsu þingmenn og aðrir áberandi flokksmenn mikinn í fjölmiðlum og nægir þar að nefna Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Guðlaug Þór Þórðarson í útvarpsþættinum Harmageddon. Þar var þessum tveimur málum ítrekað blandað saman og enginn greinarmunur gerður þar á. En þessi málflutningur kemur ekki eins og skrattinn úr sauðaleggnum því áður höfðu Bjarni Benediktsson og Vigdís Hauksdóttir (sem skipar sér oft í sveit með sjálfstæðismönnum) tjáð sig með álíka hætti fyrir nokkrum mánuðum síðan.

Þessi tvö deilumál eiga ekki að blandast saman eins og hefur ítrekað gerst undanfarið. Umræðan um ríki og kirkju snýst um það hvernig skipulag við viljum hafa á trúmálum hér á Íslandi. Viljum við óbreytt kerfi eða viljum við að öll trúfélög og lífsskoðunarfélög geti setið við sama borð, frjáls og óháð ríkisvaldinu? Umræðan er vissulega tilfinningaþrungin og mikið hitamál en góð og gild rök eru fyrir báðum hliðum málsins. Trúað fólk er báðu megin línunnar til jafns við þá sem ekki eru trúaðir.

Umræðan um það hvort Íslendingar séu kristin þjóð er allt annar handleggur og á að vera sett í miklu víðara samhengi. Umræðan um ríki og kirkju er íslenskt innanríkismál en hina umræðuna þurfum við að skoða í alþjóðlegu samhengi. Kristni er gífurlega vítt hugtak, svo ekki sé fastara að orði kveðið. Undir kristni getur fallið boðskapur þeirrar þjóðkirkju sem við höfum hér á Íslandi í dag, sem er lútersk-evangelísk kirkjudeild, en við þurfum ekki að fara lengra en til Bandaríkjanna þar sem ríkir allt öðruvísi kristni og á lítið skylt við boðskap presta íslensku þjóðkirkjunnar. Í Austur-Evrópu og Grikklandi er Rétttrúnaðarkirkjan ríkjandi og þykir mjög íhaldssöm, líkt kaþólsku kirkjunni sem er stærsta trúfélag heims og hafa stjórnendur hennar barist gegn getnaðarvörnum, fóstureyðingum, mannréttindum minnihlutahópa o.s.frv. Öfgarnar eru versta hliðin á trúarbrögðum, hvort sem það er í kristni, íslam, gyðingdómi og svo mætti lengi telja. En allar hafa þessar kirkjudeildir góðar og slæmar hliðar. Fjölbreytnin er gífurleg og varla hægt að tala um kristni sem eitthvað eitt.

Umræðan á Íslandi í dag á því ekki að snúast um hvort íslenska þjóðin sé kristin eða ekki. Sú umræða er einfaldlega komin fram yfir síðasta söludag. Það afvegaleiðir aðeins umræðuna og stillir þeim sem eru veraldlega þenkjandi – þ.e. sem vilja aðskilnað ríkis og kirkju – upp sem einhvers konar ofstækismönnum sem berjast gegn „kristnum siðum og gildum“. Þingmenn hafa stigið fram á sjónarsviðið og hafa sakað þá sem vilja aðskilnað ríkis og kirkju um að vilja afnema jól og páska og almenna frídaga sem tengjast kristnum siðum. Það er gjörsamlega fráleit nálgun. Ég veit ekki betur en að Svíar haldi heilög jól, þó skilið hafi verið milli ríkis og kirkju þar í landi. Það sama gera Þjóðverjar, Frakkar, Bandaríkjamenn og svo mætti mjög lengi telja. Hér er um að ræða órökstuddan hræðsluáróður. Umræðan á að snúast um veraldlega hluti; hún á að snúast um aðskilnað ríkis og kirkju en tilvist almættisins, Biblíuna og fleira á allt að taka út fyrir sviga.

Nú er kominn tími til þess að snúa sér að hinu raunverulega deilumáli og hætta að blanda villandi hlutum í umræðuna. Spurningin sem við stöndum frammi fyrir í dag er hvort Ísland eigi að byggja á þeim gildum sem m.a. má finna í bandarísku stjórnarskránni um trúfrelsi. Það er ekki margt sem ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna geta verið sammála um en um aðskilnað ríkis og kirkju geta þær verið sammála. Það er þá merki um að þeir sem landið erfa muni vonandi stíga skrefið til fulls. Í nákominni framtíð munum við vonandi sitja við sama borð og flest vestræn lýðræðisríki, svo ríkisvaldið sé frjálst og óháð kirkjunni og kirkjan sé frjáls og óháð ríkisvaldinu.

Bjarki Þór Grönfeldt, háskólanemi

Svar Þráins Bertelssonar við ályktun Ungra vinstri grænna
Þráinn Bertelsson, þingmaður VG

Takk fyrir skeytið og hvatningu í baráttunni vegna nýrrar stjórnarskrár.

Það hvarflaði aldrei að mér að íslenskt auðvald léti setja sér nýja stjórnarskrá þegjandi og hljóðalaust, hvað svo sem líður úrslitum í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslum þar sem Birgir Ármannsson hefur stigið fram og útskýrt af skáldlegu ofurinnsæi hvaða afstöðu þeir sem ekki tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni voru að tjá með því að tjá sig ekki, þannig að ég lít ekki á andstöðu Sjálfstæðisflokksins við nýja stjórnarskrá sem svik heldur bara sem fyrirsjáanlega hagsmunagæslu.

Það er nokkuð langt síðan mig fór að gruna að ný stjórnarskrá yrði ekki samþykkt af þinginu og send þjóðinni á yfirstandandi kjörtímabili. Það sem vakti þennan óglaða grun sem smám saman varð að vissu voru ýmsir atburðir og fyrsti hlekkurinn í keðju þessara atburða var ógilding hæstaréttar á þjóðarkosningu fulltrúa í stjórnlagaráð á hárfínum lagatæknilegum forsendum – sá dómur kom mér enn meira á óvart en til að mynda rauða spjaldið sem knattspyrnudómarinn Cüneyt Çakır sýndi Nani í gær í leik Man. Utd. og Real Madrid. Þá hefur allt lagatæknikvakið og samtakamáttur lagatæknifræðinganna ekki aukið mér bjartsýni með því að halda fram að því er virðist í fúlustu alvöru að það sé fráleitt að venjulegar manneskjur geti sett sér og samfélagi sínu stjórnarskrá, heldur sé það einungis á færi dýrustu lögfræðinga. Málþóf, þrátt fyrir innblásna andgift Gunnars Braga Sveinssonar, hefur mér líka fundist benda til þess að frekar væru menn í kamikazeleiðangri, reiðubúnir að bíða píslardauða og drukkna í eigin orðaflóði í ræðustól Alþingis en stefna framtíð þjóðarinnar í voða með því að gefa henni færi á að samþykkja eða hafna frumvarpi að stjórnarskrá sem samin var að hennar eigin frumkvæði. Tæpur stjórnarmeirihluti (tæpur í orðsins fyllstu merkingu) styrkti mig ekki í trúnni á skjótan og auðveldan framgang málsins. Samstaða þingstyrks stjórnarflokkanna dugði ekki heldur til að sannfæra mig um að nú væri sigurinn vís, því að oft hefur orðið “sundrung” komið fyrr upp í hugann en “samstaða” þegar maður hefur í huganum verið að reyna að telja þann þingmannafjölda sem myndar þann meirihluta sem stjórnin á líf sitt undir. Ég ætla hvorki að lýsa fyrir ykkur andvökunóttum né erfiðum draumum út af þessu máli, og raunar ekki orðlengja frekar um hvernig vondur grunur breyttist í sannfæringu um að mér væri ekki ætluð sú gæfa að vera hluti af þinginu sem færði þjóðinni nýja stjórnarskrá.

En í þakklætisskyni fyrir hvatningu ykkar vil ég fullvissa ykkur um að áhugi minn á því að þjóðin eignist nýja og betri stjórnarskrá er óbreyttur og ég er meira að segja bjartsýnn á að það muni takast, hvort sem það tekur lengri eða skemmri tíma, ef úrræðagóðu fólki tekst að halda baráttunni lifandi. Einn ósigur í einni orustu á einu kjörtímabili fyrir afturhaldsöflum má einu gilda, því að lokaorustuna ætlum við að vinna og þá fær þjóðin loksins sína eigin stjórnarskrá með auðlindaákvæði og öllu saman.

Það er ekki bara í sambandi við stjórnarskrána sem ég verð stundum þreyttur og svartsýnn, en þrátt fyrir svartsýnina og pirringinn hvarflar sjaldan að mér að gefast upp. Til að láta ekki neikvæðni sem kannski er meðfædd buga mig hefur mér gefist best að reyna að hugsa um annað fólk af sama umburðarlyndi og mér hefur til allrar hamingju tekist að sýna sjálfum mér gegnum tíðina.

Ef stjórnarskráin er barn sem þingið þarf að flytja yfir læk til að koma því í hendur foreldra sinna, íslensku þjóðarinnar, þá er svo mikið orðaflóð í læknum að hann er ekki væður núna og ekki viljum við ana með barnið út í bráða lífshættu.

Við skulum samt ekki gefast upp heldur gefa okkur tíma til að byggja brú (eða jarðgöng) yfir (eða undir) lækinn og koma barninu heilu og höldnu heim til foreldranna.

Aðalatriðið er að við látum ekki tröllin ná í barnið, því að þau væru vís til að drekkja því í læknum og kenna Steingrími J. Sigfússyni um allt saman, eða Samfylkingunni, nú ellegar bara Árna Páli sem mörgum finnst grunsamlega laus við það öreigalúkk sem helst þarf að prýða sannan vinstrimann.

Með illu eða góðu komum við krakkanum yfir lækinn hvort sem það tekur lengri eða skemmri tíma og látum ekkert og engan stoppa okkur.

Friður og hamingja,

Þráinn Bertelsson

Um vinnubrögð í stjórnarskrármálinu
Um vinnubrögð í stjórnarskrármálinu

Ung vinstri græn gera þá skýlausu kröfu til þingmanna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem og annarra þingmanna ríkisstjórnarinnar að þau beiti sér fyrir því að stjórnarskrárfrumvarpið verði tekið til umræðu og afgreiðslu í þinginu eins og það kemur úr stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Annað væri ekkert annað en svik við lýðræðislega ákvörðun þjóðarinnar. Ung vinstri græn minna þingmenn Vg á ályktun nýliðins landsfundar þar sem kemur skýrt fram að ekki eigi að víkja frá áformum um breytingar á stjórnarskrá.

Telja Ung vinstri græn það nauðsynlegt að Alþingi taki á þessu þingi afstöðu til þessa máls. Þá sér þjóðin allavega hvaða þingmenn gæta hennar hagsmuna og hvaða þingmenn láta sig meira varða vilja hagsmunaafla.

Opið hús hjá Ungum vinstri grænum
Ung vinstri græn ætla að halda opið hús á morgun, miðvikudaginn 6. mars, frá kl. 20 og frameftir. Þar verður hægt að spjalla við ungliða, kynna sér starfið og það sem er á döfinni eða spjalla almennt við ungliða og aðra um stjórnmál yfir kaffibolla.

Ef þú hefur áhuga á að kynna þér starfið, fá kúl barmmerki og  ræða málin yfir kaffibolla kíktu endilega við!

Opinn fundur með Sóley Tómasdóttur um málefni Orkuveitu Reykjavíkur
Fimmtudagskvöldið 7. mars kl.20 mun Sóley Tómasdóttir setjast niður með okkur á Suðurgötu 3 og ræða hvað er að gerast í málefnum Orkuveitu Reykjavíkur. Heitt kaffi og góðar umræður í boði Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu.

Ræða Talskonu Ungra Vinstri Grænna á Landsfundi VG 2013
Talskona UVG á Landsfundi 2013

Kæru félagar,

Ég er komin hingað upp – ekki sem formaður Ungra vinstri grænna – heldur sem talskona.

Á síðasta landsfundi okkar var formannsembættið lagt niður. Án formanns höfum við starfað saman í rúma fjóra mánuði og á þeim tíma höfum við gert meira en síðustu þrjár stjórnir til samans.

Því nú vinnum við saman – öll sem eitt. Við vinnum ekki lengur innan hefðbundins valdaskipulags heldur berum við öll jafna ábyrgð og höfum jafnar skyldur. Hver og einn fulltrúi Ungra vinstri grænna leggur til stjórnarinnar nákvæmlega það sem viðkomandi getur og vill. Skipulagið auðveldar nýliðum að taka þátt og kemur í veg fyrir að sá reynslumesti sópi til sín öllum völdum. Þau sem annars hefðu ekki þorað að leggja neitt til málanna eiga auðveldara með að koma skoðunum sínum á framfæri.

Við unga fólkið verðum að fá að taka þátt í að móta framtíðina.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð er að reyna að tryggja það að þeir sem taka við landinu fái sömu kjör og sömu réttindi og þeir sem nú fara með stjórn. Staðardagskrá 21, lýðræðisumbætur, jafnréttismál –  grunnstoðir flokksins snúast um betri framtíð. Við erum að reyna að tryggja þeim sem á eftir okkur koma betra líf – jafnvel betri tíma en þá sem við lifum í dag. Eldri kynslóðin gerir það ekki upp á sitt einsdæmi. Það er nauðsynlegt að við fáum að taka þátt í mótun þess samfélags sem við munum þurfa að lifa í og stjórna. Það erum við sem erfum landið og okkar raddir þurfa að heyrast.

Þegar kemur að málefnum líðandi stundar má heldur ekki gleyma að hugsa til unga fólksins.

Í dag er til dæmis erfitt fyrir ungt fólk að stofna heimili. Himinhá fasteignaverð og óstöðugur leigumarkaður gera nýjum fjölskyldum erfitt fyrir. Ungt fólk býr lengur og lengur hjá foreldrum sínum því að húsnæðismarkaðurinn býður ekki upp á annað. Kaupmáttur launa fer sífellt lækkandi og erfiðara er fyrir ungt fólk að taka sín fyrstu skref. Við eigum rétt á því að taka þátt í að móta stefnuna og þá sérstaklega í þeim málum sem standa okkur næst. Það má ekki gleyma því að einn daginn erum það við sem þurfum að taka við keflinu.

Fyrir tæpum fimm árum datt það kefli til jarðar með látum. Bankakerfið hrundi og allt stefndi í að flestir innviðir samfélagsins hryndu með því. Á þessum tíma var ég á mínu öðru ári í menntaskóla og stefndi á nám erlendis að því loknu. Líf okkar allra umturnuðust og varð ég, líkt og margir jafnaldrar mínir, hrædd um að möguleikar mínir til betra náms og lífsgæða væru úr sögunni. En vonin kom með vorinu og í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins tók hrein vinstristjórn við Stjórnarráðinu.

En þó hafa síðustu fjögur ár verið erfið. Það hefur verið erfitt að verja ýmsar þær aðgerðir sem ríkisstjórn okkar hefur þurft að framkvæma.

Mörg mál hafa skapað sundrungu í okkar röðum – og ekki síst hjá ungliðahreyfingunni. Þrátt fyrir að vera ekki alltaf sammála ríkistjórninni höfum við varið ýmsar aðgerðir hennar því að það er hluti af okkar starfi. Þó það sé oft óvinsælt. Við höfum einnig skammað hana þegar þess var þörf – og af sömu ástæðu. Þegar öllu er á botninn hvolft eigum við að geta verið ósammála en við þurfum að geta verið ósammála í sameiningu. Ekki síst á tímum sem þessum. Nú sem aldrei áður ríður á því að við getum í ósammæli okkar sameinast um grundvallarmarkmiðin. Því stefnan okkar er ekki bara vel unnin, heildstæð og góð. Hún er það sem Ísland þarf á að halda.

Við erum ekki flokkur hinna þægilegu skoðana.

Við töluðum gegn Kárahnjúkavirkjun, álverum og einkavæðingu. Við bendum fólki á að það þurfi að setja hlutina í stærra samhengi og sjá lengur vandamálum líðandi stunda – sem oft virðast svo óyfirstíganleg – og meta ákvarðanir út frá framtíðarvelferð allra. Við tölum tæpitungulaust um óþægilegu hlutina vegna þess að við vitum að á þeim þarf að taka og að það dugir ekki að lifa í þægilegri fáfræði. Við höfum alltaf verið hreyfing sem segir sannleikann og er ekki hrædd við að gera það. Þess vegna megum við ekki vera hrædd við að segja sannleikann við hvort annað hér – að játa það fyrir okkur sjálfum og hvoru öðru að það er ýmislegt sem hefði mátt fara betur undanfarin fjögur ár. Ýmislegt sem við hefðum viljað gera öðruvísi – eða bara alls ekki. En við megum heldur ekki vera smeyk við það að vera glöð yfir þeim sigrum sem náðst hafa, stórum sem smáum.

Við verðum að trúa því að við getum gert betur og að við munum gera betur. Því það er okkar starf.

Þegar að þið, flokksfélagar okkar, komið hingað upp í pontu byrjið þið ræðurnar ykkar á orðunum kæru félagar. Því það er einmitt það sem við erum. Félagar. Vinir. Við erum hópur af fólki með sameiginleg markmið og sameiginlega stefnu. Við erum öll komin saman hér í dag vegna þess að við erum með skoðanir og viljum láta raddir okkar heyrast – og við vitum að einmitt hér munu þær heyrast. Því hér er hlustað á okkur og hér getum við haft áhrif. Við erum hér til að breyta því það eru breytingar sem við viljum.  Breytingar í stjórnmálum sem og í samfélaginu öllu. Við viljum setja okkar mark á framtíðina. Breytingar geta verið erfiðar og ógnvekjandi en við sættum okkur ekki við núverandi ástand. Þess vegna sitjum við hér inni í þessum sal.

Góðir fundargestir,

Vegna breytinga stend ég hér – ekki sem formaður Ungra vinstri grænna  heldur sem talskona – og er þetta í fyrsta skiptið sem slíkt hefur gerst. Ég er að rita nafn mitt í sögu ungliðahreyfinga á Íslandi. Vegna breytinga til hins betra. Stóra spurningin er: eruð þið tilbúin til að breyta framtíðinni

Fyrir hönd UVG,

Una Hildardóttir

Auka-aðalfundur Ungra vinstri grænna á Höfuðborgarsvæðinu
Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu boða til auka-aðalfundar laugardaginn 9. mars kl.18:00.

Dagskrá fundar

1. Kosning stjórnar

2. Önnur mál

Framboð til stjórnar skilast til uvgh@vinstri.is

Una Hildardóttir nýja kosningarstýra Uvg
Una Hildardóttir hóf störf í dag sem kosningastýra Ungra vinstri grænna. Una er háskólanemi og hefur setið í stjórn Uvg síðan haustið 2011. Á þeim tíma hefur hún gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir hreyfinguna, m.a. embætti ritara og alþjóðafulltrúa hreyfingarinnar. Una er jafnframt á framboðslista fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð í Suðvesturkjördæmi.

Stjórn Uvg óskar Unu velfarnaðar í komandi kosningabaráttu